Ljósmynd af Kópavogskirkju

Ljósmyndin var nýlega tekin úr dróna.

Mál dagsins 2. maí n.k.

Mál dagsins verður þriðjudaginn 2. maí n.k. kl. 14:30-16:00.  Friðrik Kristinsson og Lenka Mátéová leiða söng.  Erindi verður flutt kl. 15:10-15:30.  Kaffi og meðlæti.  Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.

Messa 30. apríl kl.11:00

Messa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 30. apríl n.k. kl.11:00.  Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.

Uppskeruhátíð barnastarfs Kópavogskirkju 23. apríl

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 23. apríl n.k. kl.11:00.  Félagar úr þriðja og fjórða bekk Kársnesskóla syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur.  Umsjón með stundinni hafa sr. Sigurður, Bragi Árnason og Leif Kristján Gjerde.  Á eftir verður boðið upp á pylsur og djús við safnaðarheimilið Borgir.  Hoppukastalarar verða á svæðinu og að sjálfsögðu eru allir hjartanlega velkomnir.image-14

Páskar í Kársnessókn

Skírdagur 13. apríl, kl. 11:00                            

Fermingarmessa

Skírdagur 13. apríl, kl. 13:15                            

Altarisganga á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð

Föstudagurinn langi 14. apríl, kl. 11:00               

Guðsþjónusta

Föstudagurinn langi 14. apríl, frá kl.13:00          

Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir upp í heild sinni í Kópavogskirkju. Upplesturinn hefst kl. 13:00 og lýkur um það bil kl. 18:00.  Lesari er Sigurður Skúlason.  Nokkur hlé verða gerð á lestrinum og þá munu kór Kópavogskirkju og einsöngvarar Ólafía Linberg Jensdóttir og Þórunn Elín Pétursdóttir ásamt Lenku Mátéovu organista flytja tónlist eftir Bach, Fauré, Mozart, Ola Gjeilo, Jakob Tryggvasson og Þorkell Sigurbjörnsson. Fólki frjálst að koma og fara meðan á flutningi stendur. 

Páskadagur 16. Apríl kl. 08:00                                      

Hátíðarguðsþjónusta. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Sungið er hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Á eftir hátíðarguðsþjónustu verður boðið upp á morgunnverðarhlaðborð í safnaðarheimilinu Borgum en umsjón með því hafa félagar í Kór Kópavogskirkju.   Að því loknum um kl. 9:45 verður haldið í gönguferð um götuna Hófgerði á Kársnesi. Leiðsögumenn verða gamlir íbúar úr götunni. Gangan er farin í samvinnu við Sögufélag Kópavogs.

Mál dagins

Næsta Mál dagsins verður þriðjudaginn 18. apríl n.k. kl. 14:30-16:00.  Allir hjartanlega velkomnir.

Fermingarmessa 9. apríl kl. 11:00

Fermingarmessa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 9. apríl n.k. kl.11:00.  Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari með Ástu Ágústsdóttur, djákna.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.