Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Lenka Mátéová (í námsleyfi frá 1/9/23-1/8/24). Elísa Elíasdóttir leysir af á meðan:elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Fyrirbænastundir
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonFyrirbænastundir eru í Kópavogskirkju á þriðjudögum kl. 13:45. Hægt er að koma fyrirbænaefnum með því að senda tölvupóst: kopavogskirkja.is eða hringja á skrifstofu kirkjunnar, á virkum dögum á milli 9-13 (5541898).
Fyrirbænastundir kl.13:45 á þriðjudögum í kirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonBarna- og fjölskylduguðsþjónusta 10. september n.k.
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonBarna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 10. september n.k. klukkan 11:00. Sunnudagaskólinn tekur þátt í guðsþjónustunni. Allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins hefur aftur göngu sína eftir sumarfrí þriðjudaginn 5. september n.k. Starfið hefst kl.14:30 í safnaðarheimilinu Borgum með samsöng undir stjórn Lenku Matéová og Friðriks Kristinssonar. Kl.15:10 segir Unnur Þóra Jökulsdóttir frá nýlegri bók sinni um Mývatn. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því. Stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Vorvísur að hausti og Kór Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonÞann 13. september n.k. kl.20:00 ætlar Kór Kópavogskirkju að fagna liðnu sumri og syngja inn haustið með vorvísum og fleiri fallegum lögum. Tónleikagestum veður boðið upp á kaffi og kökur undir söng kórsins.
Kór Kópavogskirkju hefur starfað undir stjórn Lenku Matéová frá hausti 2008. Aðal tilgangur kórsins er að syngja við helgihald Kópavogskirkju en auk þess heldur kórinn tvenna tónleika á ári. Meðal stórra verkefna kórsins á undanförnum árum eru: Messa í dúr eftir Dvorak ásamt Kór Hjallakrikju, Stabat Mater eftir Pergolesi og Messa í g dúr eftir Schubert.
Einkunnarorð kórsins eru gleði og gæði þar sem allir fá að njóta sín. Meðal kórfélaga er að finna bæði menntaða söngvara og áhugafólk. Meðleikari á tónleikunum verður Peter Maté.
Sunnudagaskólinn
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSunnudagaskólinn hefur aftur starfsemi sína sunnudaginn 10. september nk. kl.11:00 í barna- og fjölskylduguðsþjónustu í Kópavogskirkju. Allir að sjálfsögðu hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta 3. september kl.11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 3. september n.k. kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Guðsþjónusta 27. ágúst kl.11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 27. ágúst n.k. kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová.
Tónleikar 20. ágúst kl. 21:00 í Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMessa 20. ágúst kl.20:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMessa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 20. ágúst n.k. kl. 20:00. Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur og Ásta Ágústsdóttir, djákni þjóna. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. Þór Arnarson og félagar leika á orgel og fleiri hljóðfær. Til messunar eru fermingarbörn vestursins boðuð ásamt foreldrum og forráðafólki.