Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Karlakaffi þriðjudaginn 6. maímaí 3, 2025 - 11:21 f.h.
- Aðalsafnaðarfundurmaí 2, 2025 - 6:00 e.h.
- Guðsþjónusta & fundur 04/05/25apríl 30, 2025 - 9:14 f.h.
- 27/4/25 Barna- og fjölskylduguðsþjónusta og uppskeruhátíð barnastarfsinsapríl 25, 2025 - 3:05 e.h.
- Dymbilvika og páskar í Kópavogskirkjuapríl 15, 2025 - 9:45 f.h.
Rafrænn Sunnudagaskóli
/in Fréttir/by AdministratorÞar sem hefðbundinn sunnudagaskóli fellur niður vegna Covid-19 munum við hafa í staðinn rafræna sunnudagaskóla.
Myndbandi verður þá aðgengilegt á Facebook síðu Kópavogskirkju og á kopavogskirkja.is þar sem krakkar og foreldrar geta horft á og tekið þátt í sunnudagaskólanum að heiman.
Fyrsti rafræni sunnudagaskólinn verður birtur klukkan 11:00 þann 11. október 2020.
Barna- og æskulýðsstarf fellur niður
/in Fréttir/by Ásta ÁgústsdóttirÍ ljósi aðstæðna fellur allt barna- og æskulýðsstarf niður, frá og með deginum í dag 8. október og um óákveðinn tíma. Gætum öll að sóttvörnum og hugum hvert að öðru, sameinuð stöndum við þetta af okkur.
Vegna covid 19
/in Fréttir/by Ásta ÁgústsdóttirVegna hertra sóttvarnareglna verður breyting á starfi í Kópavogskirkju.
Guðsþjónustur á sunnudögum falla niður í október, sunnudagaskóli fellur einnig niður í október .
Barna- og æskulýðsstarf verður óbreytt á fimmtudögum.
Vetrarfermingarfræðsla á mánudögum, fellur niður í október.
Mál dagsins fellur niður í október mánuði.
Prjónahópur fellur niður í október.
Við allar athafnir svo sem skírnir og hjónavígslur gilda 20 manna fjöldatakmarkanir.
Ekki verður reglubundin viðvera á skrifstofutíma eins og verið hefur, vegna heimavinnu starfsfólks og aðstæðna í samfélaginu. Fylgst er náið með símsvara og tölvupósti.
Kapellan í safnaðarheimilinu Borgum er opin eftir samkomulagi eins og verið hefur.
Fólki er velkomið að eiga þar sína stund með Guði eða fá fyrirbæn, sé þess óskað.
Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir prestur og Ásta Ágústsdóttir, djákni verða á vaktinni til að sinna sálgæslu. Best er að panta viðtal eða símtal með því að hringja í síma 554 1898 eða senda tölvupóst á: sjofnjo@simnet.is, gsm 892 7651 eða asta.agustsdottir@kirkjan.is
Gætum vel að sóttvörnum og förum að tilmælum sóttvarnaryfirvalda, þannig náum tökum á óværunni.
Leyfi sóknarprests
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonSr. Sigurður Arnarson er í leyfi í október. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir þjónar í fjarveru hans.
Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 4. október í safnaðarheimilinu Borgum
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonBarna- og fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 4. október n.k. kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Félagar úr Skólakór Kársnes syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttir. Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir leiðir stundina ásamt sunnudagaskólaleiðtogum.
Námskeið um Faðir vorið
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonFaðir vor – námseið (1)
Fermingarathöfn 27. september
/in Fréttir/by AdministratorBeint streymi af fermingarathöfn í Kópavogskirkju þann 27. september klukkan 11 verður aðgengilegt hér að neðan eða á Facebook síðu Kópavogskirkju: https://www.facebook.com/387710974680/live/
Hlé á máli dagsins
/in Fréttir/by Ásta ÁgústsdóttirVegna covid 19 fellur mál dagsins niður um óákveðinn tíma, frá og með 22. september.
Fermingarathöfn 20. september
/in Fréttir/by AdministratorBeint streymi af fermingarathöfn í Kópavogskirkju þann 20. september klukkan 11 verður aðgengilegt hér að neðan eða á Facebook síðu kirkjunnar: https://www.facebook.com/387710974680/live/
Útför Guðbjargar Jónsdóttur
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonÚtför Guðbjargar Jónsdóttur fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 18. september kl. 13:00. Streymt verður frá athöfninni á þessum hlekk:
https://youtu.be/-iKICgN4Cbk