Breytingar vegna ferminga 28. mars og 1. apríl n.k.

Nýjar sóttvarnarreglur tóku gildi á miðnætti 25. mars, 2021 vegna fjölgunar smita Covid19.
Þess vegna er ljóst er að breyta þarf fyrirkomulagi vegna ferminga þann 28. mars og 1. apríl n.k. í Kópavogskirkju.
Á vef Stjórnarráðsins segir:
„Tíu manna fjöldatakmörkun verður meginregla og aðeins börn fædd 2015 og síðar verða þar undanskilin.“
 
„Trú- og lífsskoðunarfélög mega taka á móti 30 gestum við athafnir. Þeir skulu skráðir með nafni, kennitölu og símanúmeri en þurfa ekki að sitja í númeruðum sætum. Gestum er skylt að nota andlitsgrímur og tryggja skal 2 metra regluna. Hámarksfjöldi í erfidrykkjum, fermingarveislum og sambærilegum viðburðum er 10 manns.“
Í ljósi þessarra breyttu aðstæðna býður Kópavogskirkja upp á ferminga þann 28. mars n.k. kl.10:00, 11:00, 12:00 og 13:00 og ákveðinn fjöldinn fylgir hverju fermingarbarni.
Á Skírdag 1. apríl myndi verða fermt kl. 11:00 og 12.
Fermt yrði eftir stafrófsröð á hverjum tíma fyrir sig.
Þegar er vitað hverjir munu vilji þiggja þetta boð  þá verður látið vita á föstudagsmorgninum 26. mars. hverjir fermist á hvaða tíma.
Þau sem vilja bíða með að fermast geta fermst 22. og 29. ágúst n.k. kl.11:00.
Einnig væri hægt að ferma á Hvítasunnudag 23. maí kl.11:00 ef áhugi er fyrir hendi.
Altarisgöngur munu svo fara fram síðar.