Mál dagsins

Mál dagsins verður þriðjudaginn 9. desember n.k.  og hefst að venju kl. 14:30 með samsöng.  Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.

Næsti vetrarfermingarfræðslutími

Næsti vetrarfermingarfræðslutími verður mánudaginn 15. desember n.k. kl. 15:10 í safnaðarheimilinu Borgum.  Vetrarfermingarfræðslan hefst aftur eftir jólafrí mánudaginn 12. janúar 2015 kl. 15:10 í safnaðarheimilinu Borgum.

Jólasöngvar Kórs Kópavogskirkju

Miðvikudagur. 10. desember, kl. 20:00 í safnaðarheimili Kópavogskirkju, „Borgum“.  Jólasöngvar Kórs Kópavogskirkju með þátttöku Kiwanisklúbbsins Dyngju.

Flytjendur: Kór Kópavogskirkju, Hafdís Vigfúsdóttir flauta, Peter Máté píanó, einsöngvarar úr röðum kórfélaga, stjórnandi Lenka Mátéová.

Helgileikur í Kópavogskirkju

Annan sunnudag í aðventu þann 7. desember síðastliðinn sýndu elstu nemendur leiksskólans Kópasteins helgileik í barna- og fjölskylduguðsþjónustu í Kópavogskirkju.

Félagar úr 5. bekk Kársnesskóla sungu undir stjórn Elínar Halldórsdóttur. Á eftir guðsþjónustunni var jólaball í safnaðarheimilinu Borgum. Gengið var í kringum jólatré og Gluggagægir heimsótti ballið.

Jólaball-2014-2-e1418055544688-500x373 Jólaball-2014-373x500 Kópasteinn-3-e1418055705978-500x373 Kópasteinn-2014-2-500x373 Kópasteinn-2014-5-e1418055651338-373x500 Kópasteinn-2014-e1418055750226-500x373

Barnastarf fellur niður í dag miðvikudaginn 3. desember

Vegna óviðráðanlegra orsaka fellur barnastarf í 1.-4. bekk niður í dag.  Síðasta samvera fyrir jól verður miðvikudaginn 10. desember n.k.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta og jólaball 2. sunnudag í aðventu

Annan sunnudag í aðventu þann 7. desember næstkomandi verður barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11:00.

Börn frá leikskólanum Kópasteini flytja helgileik.  Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Elínar Halldórsdóttur.  Jólaball að guðsþjónustu lokinni í safnaðarheimili Kópavogskirkju, “Borgum”.  Þar verður gengið í kringum jólatré, boðið upp á hádegishressingu og von er að rauðklæddum gesti.

Allir að sjálfsögðu velkomnir.

Sameiginleg fermingarfræðsla 2. desember kl. 20:00 í Kópavogskirkju

Fermingarfræðsla fyrir þau sem tóku þátt í síðsumarsfermingarfræðslu og þau sem taka þátt í vetrarfermingarfræðslu verður í kvöld 2. desember  kl. 20:00 í Kópavogskirkju.

Foreldrar fermingarbarna eru hvött til að koma með sínum unglingum. 

Sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti mun halda erindi og Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Elínar Halldórsdóttur.

Mál dagsins, 2. desember 2014

Í máli dagsins 2. desember mun stundin hefjast að venju með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Um kl. 15:00 mun sr. Kristján Valur Ingólfsson, vígslubiskup í Skálholti flytja erindi.  Um kl. 15:30 er drukkið kaffi og með því.  Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.

Allir hjartanlega velkomnir.