Prjónahópur Kópavogskirkju hittist tvisvar í mánuði, fyrsta og þriðja hvert þriðjudagskvöld hvers mánaðar yfir vetrartímann frá kl.19.30-21:30 í safnaðarheimilinu “Borgum”.  Fólk hittist með hannyrðir s.s. prjóna, hekl og útsaum, spjallar og ber etv. saman bækur sínar og fær nýjar hugmyndir. Boðið er uppá kaffi og te. Allir eru hjartanlega velkomnir. Fyrsta prjónakvöld haustsins 2019 hófst 3. september síðastliðinn. Sjá má nánar facebókarsíðu hópsins: Prjónahópur Kópavogskirkju