Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Guðsþjónusta 06/07/2025júlí 3, 2025 - 11:09 f.h.
- Guðsþjónusta 29/06/25júní 25, 2025 - 9:18 f.h.
- Guðsþjónusta 22/06/2023júní 20, 2025 - 10:02 f.h.
- Messa 15/06/25júní 13, 2025 - 10:30 f.h.
- Messa á hvítasunnudag 08/06/25júní 5, 2025 - 11:26 f.h.
Prjónahópur. Sr. Karl Sigurbjörnsson kemur í heimsókn og mun tala um handverk móður sinnar.
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonPrjónahópur næsta fimmtudagskvöld þann 30.mars í safnaðarheimilinu Borgum kl 19.30 – 22.00.
Sr.Karl Sigurbjörnsson kemur í heimsókn og mun tala um handverk móður sinnar, Magneu Þorkelsdóttur.
Eftir hana liggur mikið og einstaklega fallegt handverk.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kærleikssmiðjan komin í mánaðarpásu
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirKærleikssmiðjan, sem starfrækt hefur verið í safnaðarheimilinu Borgum hvern sunnudag, er nú komin í pásu til sunnudagsins 23. apríl.
Þau börn sem hafa sótt smiðjuna hafa, frá áramótum, unnið með söguna Miskunnsami Samverjinn í gegnum hin ýmsu listform: tónlist, leiklist, skúlptúragerð og nú síðast ljósmyndun. Síðasta sunnudag fengu börnin að velja sér orð til að nota sem innblástur í ljósmyndir og völdu þau orðið: Fyrirgefa.
Kennarar smiðjunnar aðstoðuðu börnin við að finna myndefni og stilla því upp og úr varð aldeilis skemmtileg myndasería. Hér fyrir neðan er hluti af seríunni en seríuna í heild sinni má skoða á uppskeruhátíð Kærleikssmiðjunnar sem haldin verður í fjölskyldumessu í Kópavogskirkju, sunnudaginn 23. apríl klukkan 11.00. Á uppskeruhátíðinni verða einnig flutt lög sem börnin hafa samið í samvinnu við kennara, skúlptúrar barnanna afhjúpaðir og hver veit nema fullorðna fólkið fái að taka virkan þátt í frumsömdu leikriti barnanna um náungakærleikann.
Fermingarmessa 2. apríl kl.11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonFermingarmessa verður sunnudaginn 2. apríl kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Mál dagsins 28. mars
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins verður þriðjudaginn 28. mars kl. 14:30-16:00. Starfið hefst með samsöng undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Klukkan 15:10 flytur Snorri Birgisson, lögreglumaður fyrirlestur um „Mannsal“. Klukkan 15:30 er kaffi. Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Messa 26. mars kl. 11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMessa verður sunnudaginn 26. mars n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Fermd verða tvö börn. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir atlari. Kór Kópavogskirkju syngur. Kærleikssmiðja á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta 19. mars
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 19. mars n.k. kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Kærleikssmiðja á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum. Allir hjartanlega velkomnir.
Mál dagsins 14. mars
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins 14. mars n.k. hefst með samsöng kl. 14:30 í safnaðarheimilinu Borgum undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Kl. 15:10 flytur Björg Baldursdóttir, skólastjóri Kársnesskóla erindi um skólann. Um kl. 15:30 verður drukkið kaffi. Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Æskulýðsdagurinn 5. mars kl. 11:00 í Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonÁ æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar verður barna- og fjölskyldusamvera í Kópavogskirkju kl. 11:00. Félagar úr Skólakór Kársnes syngja og félagar úr Kærleikssmiðju Kópavogskirkju taka einnig þátt. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta 26. febrúar kl.11:00 fellur niður vegna ófærðar
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta 26. febrúar kl.11:00 fellur niður í Kópavogskirkju vegna ófærðar.
Breyttur tími fyrir hádegisbænir frá og með 6.mars
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonHádegisbænir, sem hafa verið í Kópavogskirkju á þriðjudögum kl. 12:10 færast frá og með 6. mars til kl. 13:45 einnig á þriðjudögum. Hægt er að koma fyrirbænaefnum með því að senda tölvupóst á kopavogskirkja@kirkjan.is eða á skrifstofutíma (virka daga á milli 9-13) í síma:5541898. Allir hjartanlega velkomnir.