Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Lenka Mátéová (í námsleyfi frá 1/9/23-1/8/24). Elísa Elíasdóttir leysir af á meðan:elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Guðsþjónusta 14. maí og fundur um fermingar vorið 2018
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður sunnudaginn 14. maí kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Til guðsþjónustunnar er sérstaklega boðið fermingarbörnum vorsins 2018 og forsjárfólki þeirra. Eftir guðsþjónustuna verður fundur í kirkjunni um fermingarnar framundan og skráning fer fram í fermingarfræðsluna.
Ragnar Kjartanssson gestur í Máli dagsins 9. maí, 2017
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonStundin hefst kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks A. Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10-15:30 heldur Ragnar Kjartansson, myndlistarmaður erindi um list sína. Kaffi er drukkið kl.15:30. Stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Guðsþjónusta og aðalsafnaðarfundur 7. maí n.k.
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður sunnudaginn 7. maí kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og Ásta Ágústsdóttir, djákni þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Að lokinni guðsþjónustu verður alsafnaðarfundur Kársnessóknar í safnaðarheimilinu Borgum. Allir hjartanlega velkomnir.
Ljósmynd af Kópavogskirkju
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonLjósmyndin var nýlega tekin úr dróna.
Mál dagsins 2. maí n.k.
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMál dagsins verður þriðjudaginn 2. maí n.k. kl. 14:30-16:00. Friðrik Kristinsson og Lenka Mátéová leiða söng. Erindi verður flutt kl. 15:10-15:30. Kaffi og meðlæti. Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.
Messa 30. apríl kl.11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonMessa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 30. apríl n.k. kl.11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.
Uppskeruhátíð barnastarfs Kópavogskirkju 23. apríl
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonBarna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 23. apríl n.k. kl.11:00. Félagar úr þriðja og fjórða bekk Kársnesskóla syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Umsjón með stundinni hafa sr. Sigurður, Bragi Árnason og Leif Kristján Gjerde. Á eftir verður boðið upp á pylsur og djús við safnaðarheimilið Borgir. Hoppukastalarar verða á svæðinu og að sjálfsögðu eru allir hjartanlega velkomnir.
Páskar í Kársnessókn
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonSkírdagur 13. apríl, kl. 11:00
Fermingarmessa
Skírdagur 13. apríl, kl. 13:15
Altarisganga á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
Föstudagurinn langi 14. apríl, kl. 11:00
Guðsþjónusta
Föstudagurinn langi 14. apríl, frá kl.13:00
Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lesnir upp í heild sinni í Kópavogskirkju. Upplesturinn hefst kl. 13:00 og lýkur um það bil kl. 18:00. Lesari er Sigurður Skúlason. Nokkur hlé verða gerð á lestrinum og þá munu kór Kópavogskirkju og einsöngvarar Ólafía Linberg Jensdóttir og Þórunn Elín Pétursdóttir ásamt Lenku Mátéovu organista flytja tónlist eftir Bach, Fauré, Mozart, Ola Gjeilo, Jakob Tryggvasson og Þorkell Sigurbjörnsson. Fólki frjálst að koma og fara meðan á flutningi stendur.
Páskadagur 16. Apríl kl. 08:00
Hátíðarguðsþjónusta. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sungið er hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar. Á eftir hátíðarguðsþjónustu verður boðið upp á morgunnverðarhlaðborð í safnaðarheimilinu Borgum en umsjón með því hafa félagar í Kór Kópavogskirkju. Að því loknum um kl. 9:45 verður haldið í gönguferð um götuna Hófgerði á Kársnesi. Leiðsögumenn verða gamlir íbúar úr götunni. Gangan er farin í samvinnu við Sögufélag Kópavogs.
Mál dagins
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonNæsta Mál dagsins verður þriðjudaginn 18. apríl n.k. kl. 14:30-16:00. Allir hjartanlega velkomnir.
Fermingarmessa 9. apríl kl. 11:00
/in Fréttir, Frontpage Article/by Sigurður ArnarsonFermingarmessa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 9. apríl n.k. kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari með Ástu Ágústsdóttur, djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.