Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
- Fermingarfræðsla og fermingar vorið 2026 í Kársnessóknmaí 4, 2025 - 12:50 e.h.
- Skráning í fermingarfræðslu og fermingar 2025-2026maí 4, 2025 - 11:35 f.h.
- Karlakaffi þriðjudaginn 6. maímaí 3, 2025 - 11:21 f.h.
- Aðalsafnaðarfundurmaí 2, 2025 - 6:00 e.h.
- Guðsþjónusta & fundur 04/05/25apríl 30, 2025 - 9:14 f.h.
Prjónahópur Kópavogskirkju
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonPrjónahópur Kópavogskirkju hittist tvisvar í mánuði, fyrsta og þriðja hvert þriðjudagskvöld hvers mánaðar yfir vetrartímann. Við erum í safnaðarheimilinu Borgum frá klukkan 19.30 – 21.30. Þar hittist fólk með hannyrðir s.s. prjóna, hekl og útsaum, spjallar og ber etv. saman bækur sínar og fær nýjar hugmyndir. Boðið er uppá kaffi og te. Allir eru hjartanlega velkomnir. Fyrsta prjónakvöld haustsins 2019 hófst 3. september síðastliðinn. Sjá má nánar facebókarsíðu hópsins: Prjónahópur Kópavogskirkju
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju sunnudaginn 8. september
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonGuðsþjónusta verður kl.11:00 sunnudaginn 8. september. Hilmir Kolbeins, guðfræðinemi prédikar. Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová.
Sunnudagskólinn í Kópavogskirkju
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonÁ hverjum sunnudegi í vetur kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Skemmtilegt og fræðandi fyrir þau sem yngri eru.
Æskulýðsfundir fyrir 8. bekk
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonVikulegir æskulýðsfundir fyrir 8. bekk hefjast fimmtudaginn 5. september og eru frá kl. 20:00-21:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Fjölbreytt og skemmtilegt starf.
Fyrirbænastundir
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonFyrirbænastundir eru á þriðjudögum kl.13:45 í safnaðarheimilinu Borgum. Allir hjartanlega velkomnir
Mál dagsins hefst aftur 3. september kl.14:30
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonMál dagsins hefst aftur þriðjudaginn 3. september næstkomandi kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 flytur Björn Erlingsson, sagnfræðingur erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því. Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.
Sunnudagaskólinn hefst 1. september kl.11:00 í Kópavogskirkju
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonMessa 25. ágúst kl.11:00
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonMessa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 25. ágúst n.k. kl. 11:00. Fermingarbörn næsta vetrar taka þátt í messunni. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors. Á eftir messunni verður stuttur fundur með fermingarbörnum og forráðafólki næsta vetrar í kirkjunni.
Miðvikudagur 21. ágúst kl. 12:15
Guided tour – Stained Glass windows of Gerður Helgadóttir I Culture Wednesdays
Wednesday 21st of August 12:15 p.m. The pastor of Kópavogskirkja, Sigurður Arnarson, will lead a guided tour of Gerður Helgadóttirs´ church windows and give an insight into the construction work on the south side windows of the church. Gerður studied the art of stained glass making at the renowned Barillet workshop in Paris and designed windows for a number of churches both in Iceland and abroad. Gerður Helgadóttir was a pioneer of abstract sculpture in Iceland and she passed away beyond her years at only 47 years of age. The Culture Houses of Kópavogur host an open and diverse culture program every Wednesday. The Culture Houses of Kópavogur are: Gerðasafn Kópavogur Art Museum, Natural History Museum of Kópavogur, Salurinn Concert Hall, Kópavogur Archives and Kópavogur Public Library. The event is in Icelandic and English and is free of charge. Everyone is welcome!
Nokkur minnisatriði vegna fermingarfræðslunnar
/in Fréttir/by Sigurður ArnarsonMinnisatriði vegna síðsumarsfermingarfræðslu, ágúst 2019
Síðsumarnámskeið verður 19. til 22. ágúst, 2019 frá kl. 9:15-12:30 í safnaðarheimilinu “Borgum”. Unglingarnir eru beðnir að koma með nesti með sér.
Messur 25. ágúst 2019 og 26. janúar 2020 og fundur með foreldrum eftir messu. Mikilvægt er að foreldrar, foráðafólk og fermingarbörn komi á þessa fundi.
Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp) verða fimmtudaginn 21.nóvember, 2019 og mánudaginn 23. mars 2020.
Vetrarrfermingarfræðslan hefst í september (nánar tilkynnt síðar).Bækurnar sem eru notaðar heita: Con Dios, A ha, og Kirkjulykill (verða til sölu hjá okkur ef fólk vill. Í september n.k. verða sendar kröfur í heimabanka fyrir bókunum en þær eru keyptar fyrir milligöngu Kársnessóknar). Hægt er að fá Nýja testamenntið gefins hjá okkur og Sálmabókin er lánuð. Mikilvægt er að eignast bækurnar strax og kennsla hefst í ágúst, svo við getum verið samferða í tímunum.
Messur í vetur!
Áríðandi er að fermingarbörn sæki helgihald eins vel og unnt er og að sjálfsögðu allir velkomnir með þeim. Beðið eru um að farsímar (snjallsímar) séu ekki í notkun á meðan helgihaldinu stendur.