Fermingar 2021

Fermingar 2021 í Kópavogskirkju

Þau sem óska eftir því að fermast og hafa ekki skráð sig geta haft samband með tölvupósti við sr. Sigurð Arnarson, sóknarprest (sigurdur.arnarson@kirkjan.is). Síðsumarnámskeið verður 17. til 19. ágúst, 2020 frá kl. 9:15-12:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Vetrarfermingarfræðsla (fyrir þau sem ekki eru á síðsumarsnámskeiðinu) verður vikulega næsta vetur frá og með byrjun september, 2020 í safnaðarheimilinu Borgum (nánar tilkynnt síðar).

Messur 23. ágúst 2020 og 31. janúar 2021 og fundur með foreldrum eftir messu. 

Mikilvægt er að foreldrar og fermingarbörn komi á þessa fundi.

Í haust förum við í Vatnaskóg og dveljum þar í einn dag. Farið verður í Vatnaskóg  og komið til baka að Kópavogskirkju eftir kvöldmat í Vatnaskógi (dagsetning nánar tilkynnt síðar)

Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp) verða (hálfur dagur fyrir áramót og hálfur dagur eftir áramót).

Aukatímar gætu orðið á laugardögum kl. 11:00 ef einhverjir komast ekki á fyrirframskipulögðum fræðslutímum.Það yrði auglýst síðar.

Bækurnar sem eru notaðar heita: Con Dios, A ha, og Kirkjulykill (verða til sölu hjá okkur ef fólk vill).  Hægt er að fá Nýja testamenntið gefins hjá okkur og Sálmabókin er lánuð.

Mikilvægt er að eignast bækurnar strax og kennsla hefst í ágúst, svo við getum verið samferða í tímunum.

Áríðandi er að fermingarbörn sæki helgihald eins vel og unnt er og að sjálfsögðu allir velkomnir með þeim. Í helgihaldið eru fermingarbörnin beðin um að  taka með sér „Kirkjulykilinn“  og fylla út sérstök kirkjusóknarblöð í bókinni. Fermingarbörn skrá sig hjá kirkjuverði eftir hverja messu. Foreldrar eru einnig hvött til að sækja helgihaldið með sínum unglingum.

Í messunum og guðsþjónustunum er beðið um að fermingarbörn taki tillit til annarra kirkjugesta og hafa í huga að þau eru á helgum stað.  Beðið eru um að farsímar (snjallsímar) séu  ekki í notkun á meðan helgihaldinu stendur, það sé slökkt á þeim.

Við, sem söfnuður, eigum saman kirkjuhúsið og safnaðarheimilið.  Íbúar sóknarinnar, sem eru skráðir í Þjóðkirkjuna, greiða til kirkjunnar sóknargjöld sem standa undir öllum rekstri hennar. Göngum þess vegna vel um kirkjuna okkar og hugsum vel um hana.

Fermingardagar 2021  verða sem hér segir:

Sunnudag 21. mars, 2021, kl. 11:00

Pálmasunnudag 28. mars, 2021 kl.11:00

Skírdagur 1. apríl 2021, kl. 11:00

Fermingarbörn geta valið fermingardaga eins og undanfarin ár. Hver ferming tekur mislangan tíma en það fer eftir fjölda fermingarbarna hverju sinni.  Allir eru að sjálfsögðu velkomnir í fermingarnar.

Æfingar fyrir fermingarmessur eru í Kópavogskirkju, vorið 2021:

Sunnudag 21. mars, 2021, kl. 11:00

Æfingar eru 18 og 19. mars kl. 16:15-17:15

Pálmasunnudagur 28. apríl, 2021  kl.  11:00.

Æfingar eru 25 og 26. mars kl. 16:15-17:15

Skírdagur 1. apríl 2020, kl. 11:00.

Æfingar eru 29 og 30. mars kl. 10:00-11:00.

Kópavogskirkja á heimasíðu:

www.kopavogskirkja.is  Þar leitumst við að hafa allar upplýsingar um safnaðarstarfið

VIÐ NOTUM TÖLVUPÓST Í SAMSKIPTUM

MIKILVÆGT AÐ FÁ NETFÖNG FERMINGARBARNA OG FORELDRA TIL AÐ ALLAR UPPLÝSINGAR BERIST GREIÐLEGA.  Allar upplýsingar varðand safnaðarstarfið verða birtar á www.kopavogskirkja.is