Fyrirbænastund

Fyrirbænastundir eru á þriðjudögum í kapellu safnaðarheimilisins kl. 13:45. Allir hjartanlega velkomnir.

Prjónahópur Kópavogskirkju

Prjónahópur Kópavogskirkju hittist tvisvar í mánuði, fyrsta og þriðja hvert þriðjudagskvöld hvers mánaðar yfir vetrartímann. Við erum í safnaðarheimilinu Borgum frá klukkan 19.30 – 21.30. Þar hittist fólk með hannyrðir s.s. prjóna, hekl og útsaum, spjallar og ber etv. saman bækur sínar og fær nýjar hugmyndir. Boðið er uppá kaffi og te. Allir eru hjartanlega velkomnir. Fyrsta prjónakvöld haustsins 2019 hófst 3. september síðastliðinn. Sjá má nánar facebókarsíðu hópsins: Prjónahópur Kópavogskirkju

Guðsþjónusta í Kópavogskirkju sunnudaginn 8. september

Guðsþjónusta verður kl.11:00 sunnudaginn 8. september. Hilmir Kolbeins, guðfræðinemi prédikar. Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová.

Sunnudagskólinn í Kópavogskirkju

Á hverjum sunnudegi í vetur kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Skemmtilegt og fræðandi fyrir þau sem yngri eru.

Æskulýðsfundir fyrir 8. bekk

Vikulegir æskulýðsfundir fyrir 8. bekk hefjast fimmtudaginn 5. september og eru frá kl. 20:00-21:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Fjölbreytt og skemmtilegt starf.

Fyrirbænastundir

Fyrirbænastundir eru á þriðjudögum kl.13:45 í safnaðarheimilinu Borgum. Allir hjartanlega velkomnir

Mál dagsins hefst aftur 3. september kl.14:30

Mál dagsins hefst aftur þriðjudaginn 3. september næstkomandi kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10 flytur Björn Erlingsson, sagnfræðingur erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og með því. Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.

Messa 25. ágúst kl.11:00

Messa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 25. ágúst n.k. kl. 11:00. Fermingarbörn næsta vetrar taka þátt í messunni. Sr. Sigurður Arnarson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová, kantors. Á eftir messunni verður stuttur fundur með fermingarbörnum og forráðafólki næsta vetrar í kirkjunni.

Leiðsögn um glugga Gerðar Helgadóttur I Menning á miðvikudögum
Miðvikudagur 21. ágúst kl. 12:15
 
Leiðsögn með séra Sigurði Arnarsyni sóknarpresti sem segir frá steindum gluggum Gerðar Helgadóttur í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður veitir innsýn í nýjar framkvæmdir sem áttu sér stað á gluggum á suðurhlið kirkjunnar en hluti glugganna voru teknir niður og sendir til viðgerða til Oidtmann bræðra í Þýskalandi, sem er sama glerverkstæði og Gerður vann með í lifanda lífi. Gerður nam gluggagerðarlist í París hjá hinu þekkta Barillet verkstæði og skarta fjölda kirkjur gluggum eftir hana bæði erlendis og á Íslandi og má þar nefna Skálholtskirkju, sem var það verk sem listakonan mat sjálf einna mest. Erindið er liður í dagskránni Menning á miðvikudögum á vegum Menningarhúsanna í Kópavogi sem eru Bókasafn Kópavogs, Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa, Héraðsskjalasafn og Salurinn. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

Guided tour – Stained Glass windows of Gerður Helgadóttir I Culture Wednesdays 
Wednesday 21st of August 12:15 p.m.
The pastor of Kópavogskirkja, Sigurður Arnarson, will lead a guided tour of Gerður Helgadóttirs´ church windows and give an insight into the construction work on the south side windows of the church. Gerður studied the art of stained glass making at the renowned Barillet workshop in Paris and designed windows for a number of churches both in Iceland and abroad. Gerður Helgadóttir was a pioneer of abstract sculpture in Iceland and she passed away beyond her years at only 47 years of age. The Culture Houses of Kópavogur host an open and diverse culture program every Wednesday. The Culture Houses of Kópavogur are: Gerðasafn Kópavogur Art Museum, Natural History Museum of Kópavogur, Salurinn Concert Hall, Kópavogur Archives and Kópavogur Public Library.    The event is in Icelandic and English and is free of charge. Everyone is welcome!