Prjónahópur
Prjónahópur Kópavogskirkju hittist 1 og 3 fimmtudag í hverjum mánuði í safnaðarheimilinu Borgum kl.20:00. Allir hjartanlega velkomnir.
This author has not written his bio yet.
But we are proud to say that Sigurður Arnarson contributed 778 entries already.
Prjónahópur Kópavogskirkju hittist 1 og 3 fimmtudag í hverjum mánuði í safnaðarheimilinu Borgum kl.20:00. Allir hjartanlega velkomnir.
Miðvikudaginn 27. janúar síðastliðinn fór fram frá Kópavogskirkju útför Guðmundínu Oddbjargar Magnúsdóttur eða Mundu eins og hún var kölluð. Munda var búsett í sókninni í áratugi. Hún skar ýmislegt út í tré meðal annars gestabók með Kópavogskirkju framan á. Meðfylgjandi ljósmynd var tekin af þessu fallega handverki Mundu.
Messa verður 31. janúar n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni en flyst síðan í safnaðarheimilið Borgir. Til messunnar eru boðin fermingarbörn vorsins og foreldrar þeirra. Eftir messu verður fundur í kirkjunni með fermingarbörnum […]
Næsta Mál dagsins verður 26. janúar n.k. kl. 14:30-16:00 og hefst með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Um kl. 15:10 verður flutt 20 mínútna erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun.
Mánudaginn 1. febrúar n.k. frá kl. 20:00-21:30 hefur göngu sína starf með syrgjendum alls 8 skipti (hisst er vikulega fyrstu 6 skiptin). Hópurinn er ætlaður konum, sem hafa misst nána ættingja. Handleiðslu annast Ásta Ágústsdóttir, djákni. Nánari upplýsingar má fá á skrifstofu safnaðarins virka daga á milli 09:00-13:00 eða með því að senda tölvupóst á […]
Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 24. janúar n.k. kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni.
Kirkjustarf fyrir börn í 1-4 bekk hefst aftur miðvikudaginn 19. janúar eftir jólafrí. Starfið er á miðvikudögum frá kl. 14:00-15:00. Ef óskað er eftir því er hægt að ná í börnin í Dægradvöl Kársnesskóla og skila aftur að starfi loknu. Allir hjartanlega velkomnor
Að skoða hið augljósa? Guðfræði Jóhannesar. Fyrirlestraröð í Breiðholtskirkju fimmtudagskvöld kl. 20 – 22. Fyrsta skiptið er 14. jan og síðasta 17. mars. nóv. Dr. dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson héraðsprestur fjallar um guðfræðina í guðspjalli Jóhannesar. Það má segja að meðan samstofna guðspjöllin (matt, mark og lúk) fjalla um verk og hlutskipti Jesú þá fjalli […]
Næsta „Mál dagsins“ verður þriðjudaginn 19. janúar n.k og hefst kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar. Kl. 15:10 heldur Helgi Árnason, skólastjóra erindi um skólastarfið í dag. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl.16:00 með bæn og blessun.
Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 17. janúar n.k. kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Máteóvá. Sunnudagaskólinn hefst að venju í guðsþjónustunni en flyst svo í safnaðarheimilið Borgir. Allir hjartanlega velkomnir.
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
