Mál dagsins 27/10/26
Þriðjudaginn 27. október verður „Mál dagsins“ á sínum stað í Borgum, safnaðarheimili Kópavogskirkju kl. 14.30-16.00. Eftir samsöng með Þórunni Björnsdóttur fáum við heimsókn frá Guðna Einarssyni blaðamanni. Landhelgisgæslan er nefnilega 100 ára á þessu ári og Guðni er höfundur að miklu riti um sögu hennar. Mun Guðni Einarsson segja okkur sitthvað af þessari merkilegu sögu.




