Þriðjudagurinn 21/04/26

Nóg er um að vera hjá okkur þriðjudaginn 21. apríl

kl. 10.30-11.30 „Þjóðmálakaffi“ NÝR VETTVANGUR! Á morgun, þriðjudaginn 21. apríl kl. 10.30-11.30 í safnaðarheimili Kópvogskirkju fer af stað nýr dagskrárliður hjá okkur. Mánaðarlegt „þjóðmálakaffi.“ Fyrsti viðmælandi þjóðmálakaffis er Albert Jónsson, fyrrv, sendiherra. og talar um breytta stöðu Íslands í nýrri skipan alþjóðamála. Þannig kemur hann inn á Evrópumálin, loftslagsstefnu, og jafnvel málefni Írans og Úkraínu. Verið velkomin!

kl. 12.15 Bænastund í hádeginu.  Beðið er fyrir fólki með nafni, tónlist er flutt og boðið upp á léttan málsverð á eftir fyrir þau sem vilja.

Kl. 14.30-16.00 Mál dagsins.  Við byrjum með samsöng með Þórunni Björnsdóttur. Þá kemur Gísli Már Gíslason, prófessor Emerítus í Vatnalíffræði. Hann segir okkur frá skordýrum á Íslandi sem sjúga blóð. Kaffisamsæti á eftir.

Verið velkomin!