Barna- og æskulýðsstarf fellur niður

Í ljósi aðstæðna fellur allt barna- og æskulýðsstarf niður, frá og með deginum í dag 8. október og um óákveðinn tíma. Gætum öll að sóttvörnum og hugum hvert að öðru, sameinuð stöndum við þetta af okkur.

Vegna covid 19

Vegna hertra sóttvarnareglna verður breyting á starfi í Kópavogskirkju.

Guðsþjónustur á sunnudögum falla niður í október, sunnudagaskóli fellur einnig niður í október .

Barna- og æskulýðsstarf verður óbreytt á fimmtudögum.

Vetrarfermingarfræðsla á mánudögum, fellur niður í október.

Mál dagsins fellur niður í október mánuði.

Prjónahópur fellur niður í október.

Við allar athafnir svo sem skírnir og hjónavígslur gilda 20 manna fjöldatakmarkanir.

Ekki verður reglubundin viðvera á skrifstofutíma eins og verið hefur, vegna heimavinnu starfsfólks og aðstæðna í samfélaginu. Fylgst er náið með símsvara og tölvupósti.

Kapellan í safnaðarheimilinu Borgum er opin eftir samkomulagi eins og verið hefur.
Fólki er velkomið að eiga þar sína stund með Guði eða fá fyrirbæn, sé þess óskað.

Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir prestur og Ásta Ágústsdóttir, djákni verða á vaktinni til að sinna sálgæslu. Best er að panta viðtal eða símtal með því að hringja í síma 554 1898 eða senda tölvupóst á: sjofnjo@simnet.is, gsm 892 7651 eða asta.agustsdottir@kirkjan.is

Gætum vel að sóttvörnum og förum að tilmælum sóttvarnaryfirvalda, þannig náum tökum á óværunni.

Leyfi sóknarprests

Sr. Sigurður Arnarson er í leyfi í október.  Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir þjónar í fjarveru hans.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 4. október í safnaðarheimilinu Borgum

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 4. október n.k. kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Félagar úr Skólakór Kársnes syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttir.  Sr. Sjöfn Jóhannesdóttir leiðir stundina ásamt sunnudagaskólaleiðtogum.

Fermingarathöfn 27. september

Beint streymi af fermingarathöfn í Kópavogskirkju þann 27. september klukkan 11 verður aðgengilegt hér að neðan eða á Facebook síðu Kópavogskirkju: https://www.facebook.com/387710974680/live/

 

Beint streymi af fermingarathöfn í Kópavogskirkju þann 27. september klukkan 11

Posted by Kópavogskirkja on Laugardagur, 26. september 2020

Hlé á máli dagsins

Vegna covid 19 fellur mál dagsins niður um óákveðinn tíma, frá og með 22. september.

Fermingarathöfn 20. september

Beint streymi af fermingarathöfn í Kópavogskirkju þann 20. september klukkan 11 verður aðgengilegt hér að neðan eða á Facebook síðu kirkjunnar: https://www.facebook.com/387710974680/live/

Beint streymi af fermingarathöfn Kópavogskirkju þann 20. september 2020

Posted by Kópavogskirkja on Laugardagur, 19. september 2020

Útför Guðbjargar Jónsdóttur

Útför Guðbjargar Jónsdóttur fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 18. september kl. 13:00.  Streymt verður frá athöfninni á þessum hlekk:

https://youtu.be/-iKICgN4Cbk

 

Fermingar

Þau, sem áttu að fermast síðasta vor í Kópavogskirkju verða fermd í kirkjunni sunnudaganna 20. og 27. september n.k. kl.11:00 í Kópavogskirkju.