Fermingar vorið 2026 í Kópavogskirkju

Síðsumarsfermingarfræðslan verður 20, 21 og 22. ágúst, 2025 frá kl. 9:00-13:00 í safnaðarheimilinu Borgum og Kópavogskirkju.Vetrarfermingarfræðsla (fyrir þau sem ekki eru á síðsumarsnámskeiðinu) verður vikulega næsta vetur frá og með byrjun september, 2025 í safnaðarheimilinu Borgum (nánar tilkynnt síðar).

Messur 24. ágúst 2025 og 25. janúar 2026 og fundur með foreldrum eftir messu.  Mikilvægt er að foreldrar og unglingarnarikomi á þessa fundi.Í vetur verður farið í dagferð í Skálholt (dagsetning nánar tilkynnt síðar.)

Sameiginlegir fermingarfræðslutímar (fyrir bæði síðsumarfræðslu- og vetrarfræðsluhóp, nokkrir hálfir dagar fyrir og eftir áramót, nánar tilkynnt síðar).Aukatímar gætu orðið ef einhverjir komast ekki á fyrirframskipulögðum fræðslutímum. Það yrði auglýst síðar.Bækurnar sem eru notaðar heita: Con Dios og Kirkjulykill (við lánum Con Dios og seljum Kirkjulykilinn á 1.200 kr.).  Hægt er að fá Nýja testamenntið gefins hjá okkur og Sálmabókin er lánuð.

Áríðandi er að fermingarbörn sæki helgihald eins vel og unnt er og að sjálfsögðu allir velkomnir með þeim. Í helgihaldið eru fermingarbörnin beðin um að  taka með sér „Kirkjulykilinn“ og fylla út sérstök kirkjusóknarblöð í bókinni. Fermingarbörn skrá sig hjá kirkjuverði eftir hverja messu. Foreldrar eru einnig hvött til að sækja helgihaldið með sínum unglingum.Í messunum og guðsþjónustunum er beðið um að fermingarbörn taki tillit til annarra kirkjugesta og hafa í huga að þau eru á helgum stað.  Beðið eru um að farsímar (snjallsímar) séu  ekki í notkun á meðan helgihaldinu stendur, það sé slökkt á þeim. Við, sem söfnuður, eigum saman kirkjuhúsið og safnaðarheimilið.  Íbúar sóknarinnar, sem eru skráðir í Þjóðkirkjuna, greiða til kirkjunnar sóknargjöld sem standa undir öllum rekstri hennar. Göngum vel um kirkjuna okkar og hugsum vel um hana.

Fermingardagar 2026  verða sem hér segir:

Sunnudag 22. mars, 2026, ef fleiri en 20 skrá sig þann dag verður fermt kl.11:00 og 13:00. Ef færri en 20 skrá sig á daginn er fermt kl. 11:00. 

Svo þetta liggi sem fyrst ljóst fyrir er mikilvægt að skrá unglingana sem í fræðsluna við fyrsta tækifæri.

Pálmasunnudag 29. mars, 2026 kl.11:00

Skírdagur 2. apríl 2026, kl. 11:00

Fermingarbörn geta valið fermingardaga eins og undanfarin ár. Hver ferming tekur mislangan tíma en það fer eftir fjölda fermingarbarna hverju sinni.  Allir eru að sjálfsögðu velkomnir í fermingarnar.

Æfingar fyrir fermingarmessur eru í Kópavogskirkju, vorið 2026:

Sunnudag 22. mars, 2026, kl. 11:00

Æfingar eru 20. mars kl. 16:15-17:00 fyrir hópinn sem fermist kl. 11:00 og

  1. mars kl. 17:15-18:00 ef fermt verður þann 22/3/26 kl. 13:00 (kemur endanlega í ljós þegar skráningum í fræðsluna er lokið og því mikilvægt að skrá unglingana sem fyrst).

Pálmasunnudagur 29. mars, 2026 kl.  11:00.

Æfing 27. mars kl. 16:15-17:00

Skírdagur 2. apríl 2026, kl. 11:00.

Æfing 30. mars kl. 10:00-11:00.

Kópavogskirkja er á Facebook, Instagram, Tik Tok og heimasíðan er: www.kopavogskirkja.is  Þar leitumst við að hafa upplýsingar um starfið.Fermingarfræðslugjald er 24.992kr. krónur samkvæmt viðmiðunargjaldskrá Prestafélags Íslands frá 1. apríl 2025. Gjald fyrir síðsumarfermingarfræslu greiðist í ágúst n.k. Ef óskað er eftir að greiða gjaldið síðar vinsamlega sendið tölvupóst á netfagnið: kopavogskirkja@kirkjan.isVIÐ NOTUM TÖLVUPÓST Í SAMSKIPTUM– MIKILVÆGT AÐ FÁ NETFÖNG FORELDRA og FORRÁÐAFÓLKS TIL AÐ ALLAR UPPLÝSINGAR BERIST GREIÐLEGA.  Allar upplýsingar varðand safnaðarstarfið verða birtar á www.kopavogskirkja.is

Skráning í fræðslu er á þessum hlekk: https://forms.gle/wTt6sxmUPiG8LZBn9

Gátlisti fyrir fermingarpróf

Postullega trúarjátningin
Ég trúi á Guð, föður almáttugan, skapara himins og jarðar.
Ég trúi á Jesú Krist, hans einkason, Drottin vorn, sem getinn er af heilögum anda,
fæddur af Maríu mey, píndur á dögum Pontíusar Pílatusar,
krossfestur, dáinn og grafinn,
steig niður til heljar,
reis á þriðja degi aftur upp frá dauðum,
steig upp til himna,
situr við hægri hönd Guðs föður almáttugs
og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.
Ég trú á heilagan anda, heilaga almenna kirkju, samfélag heilagra,
fyrirgefningu syndanna, upprisu mannsins og eilíft líf.
Amen.

Faðir vor

Faðir vor, þú, sem ert á himnum.

Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,

verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni.

Gef oss í dag vort daglegt brauð.

Og fyrirgef oss vorar skuldir

svo sem vér og fyrirgefum

vorum skuldunautum.

Eigi leið þú oss í freistni,

heldur frelsa oss frá illu.

Því að þitt er ríkið,

mátturinn og dýrðin

að eilífu. Amen.

 

 

Tvöfalda kærleiksboðið

“þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum huga þínum og af öllum mætti þínum. Annað er þetta: Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.”

Vertu, Guð faðir, faðir minn

Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni. Hallgrímur Pétursson

Gullna reglan

Allt sem þér viljið að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra.

Boðorðin tíu

1. Ég er Drottinn Guð þinn, þú skalt ekki aðra guði hafa.

2. Þú skalt ekki leggja nafn Drottins Guðs þíns við hégóma.

3. Minnstu þess að halda hvíldardaginn heilagan.

4. Heiðra skaltu föður þinn og móður.

5. Þú skalt ekki morð fremja.

6. Þú skalt ekki drýgja hór.

7. Þú skalt ekki stela.

8. Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum.

9. Þú skalt ekki girnast hús náunga þíns.

10. Þú skalt ekki girnast konu náunga þíns, þjón, þernu né nokkuð það sem náungi þinn á.