Um Kópavogskirkju
Skrifstofa safnaðarins er í Safnaðarheimilinu Borgum, Hábraut 1a og er opin virka daga á milli 09:00-13:00. Símanúmer kirkjunnar og safnaðarheimilis er: 554 1898. Póstfang safnaðarins er Hábraut 1a, 200 Kópavogur. Netfang: kopavogskirkja@kirkjan.is.
Sóknarprestur: Sr. Sigurður Arnarson: sigurdur.arnarson@kirkjan.is
Prestur: Sr. Grétar Halldór Gunnarsson: gretar.halldor.gunnarsson@kirkjan.is
Djákni Kópavogskirkju: Ásta Ágústsdóttir, netfang: asta.agustsdottir@kirkjan.is
Tónlistarstjóri: Elísa Elíasdóttir: elisaeliasdottir@gmail.com
Kirkjuvörður er Dóra Guðrún Þorvarðardóttir, netfang kirkjuvordur@kopavogskirkja.is
Kirkjan er opin eftir samkomulagi.
Nýjustu Fréttir
Guðaþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11:00 þann 21. desember 2025desember 20, 2025 - 10:55 f.h.
Helgihald á jólum og um áramótdesember 18, 2025 - 10:05 e.h.
Messa & sunnudagaskóli 14/12/25desember 11, 2025 - 10:46 f.h.
Tónlistarguðsþjónusta í Kópavogskirkju 7/12/25 kl.11:00desember 6, 2025 - 7:57 f.h.
Tónlistarguðsþjónusta 7/12/25 kl.11:00desember 4, 2025 - 12:47 e.h.

Kirkjustarf fyrir 1.-4. bekk í vetur
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirBarnastarf í Kópavogskirkju fyrir nemendur 1.-4. bekkjar
Verið velkomin í starfið. Starfið hefst miðvikudaginn 7. október næstkomandi. Við munum hittast alla miðvikudaga frá 7. október – 2. Desember og svo aftur eftir áramót.
1.-2. bekkur mun mæta frá kl 14:00-15:00 og 3.-4. bekkur frá 15:30-16:30.
Börn úr 1 og 2. bekk verða sótt um kl 13:45 í Dægradvöl Kársnesskóla og gengið til baka rúmlega 15:00. Börn úr 3.- 4. bekk verða sótt í Dægradvöl um kl. 15:00 og starfinu lýkur kl 16:30. Dagskráin verður með svipuðu sniði og í fyrra. Munum við reyna að hafa dagskrána sem fjölbreyttasta þannig að það sé eitthvað fyrir alla.
Dagskrá vetrarins:
7. október – Kynning á starfinu og skemmtilegir leikir
14. október – Tjáning, samskipti og leikir
21. október – Ratleikur
28. október – Vinátta og leikir
4. nóvember – Plakatgerð og spil
11. nóvember – Video, popp og djús
18. nóvember – “Minute to win it”
25. nóvember – Skreyta piparkökur
2. desember – Jólaföndur
Vinsamlega látið Dægradvöl einnig vita að barnið taki þátt í þessu starfi.
Hlökkum til að sjá sem flesta.
Bestu kveðjur,
Ýr Sigurðardóttir og Helgi Steinn Björnsson
Fermingarfræðsla
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirÞann 28. september verður í safnaðarheimilinu Borgum fyrsta sameiginlega fermingarfræðsla vetrarins klukkan 16:00-16:40 (í fræðsluna eiga að mæta þau sem sóttu síðsumarsfræðslu og þau sem sækja fræðsluna í vetur).
Æskulýðsfundir fyrir 8. bekk hefjast í næstu viku á þriðjudeginum 6. október í safnaðarheimilinu Borgum.
Miðvikudaginn 7. október er fermingarfræðsluferð í Vatnaskóg.
Guðsþjónusta 4. október
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirGuðsþjónusta verður 4. október n.k. kl. 11:00. Dr. Karl Sigurbjörnsson, biskup prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni.
Sameiginleg fermingarfræðsla
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirSameiginleg fermingarfræðsla verður mánudaginn 28. september kl. 16:00-16:40 í safnaðarheimilinu Borgum.
Fræðslan er fyrir allan hópinn, það er þau sem sóttu síðsumarsfermingarfræðslu og sækja nú vetrarfermingarfræðslu.
Mál dagsins 29. september
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirMál dagsins verður 29. september n.k. kl. 14:30-16:00. Stungið verður undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Máteóvá. Um kl. 15:10 heldur Gísli Rafn Ólafsson erindi um starf sitt á vegum hjálparsamtaka. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.
Allir hjartanlega velkomnir.
Foreldrarmorgnar og barnastarf
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirForeldramorgnar
Á hverjum fimmtudegi frá klukkan 10:00-12:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Umsjón með starfinu hefur Magnea Tómasdóttir, söngkona. Allir foreldrar ungra barna velkomnir. Reglulega eru heimsóknir frá aðilum með fræðslu og kynningar á ýmsu, sem tengist börnum og barnauppeldi.
Starfið hefst 24. september n.k.
Sunnudagaskólinn
Hvern sunnudag klukkan 11:00. Lögð er áhersla á fræðslu um kristna trú, gleði og söng. Sagðar eru sögur, brúður koma í heimsókn og ýmislegt annað. Sunnudagaskólann annast þau: Þóra Marteinsdóttir, tónmenntakennari, Bjarmi Hreinsson, háskólanemi, Oddur Örn Ólafsson, menntaskólanemi og sr. Sigurður Arnarson.
Sunnudagaskólinn hófst 6. september síðastliðinn.
Starf fyrir börn í 1.-2. bekk
Á miðvikudögum klukkan 14:00-15:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is geta foreldrar eða forráðamenn skráð og óskað eftir því að náð sé í börn þeirra í Dægradvöl í Kársnesskóla og farið með þau þangað aftur að kirkjustarfi loknu.
Starfið hefst 7. október n.k.
Starf fyrir börn í 3.-4. bekk
Á miðvikudögum kl.15:30-16:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Með því að senda tölvupóst á netfangið kopavogskirkja@kirkjan.is geta foreldrar eða forráðamenn skráð og óskað eftir því að náð sé í börn þeirra í Dægradvöl í Kársnesskóla og farið með þau þangað aftur að kirkjustarfi loknu.
Starfið hefst 7.október n.k.
Æskulýðsstarf fyrir 8. bekk
Starfið er ætlað unglingum í 8. bekk. Fundir eru á þriðjudagskvöldum frá kl. 20:00-21:30 í safnaðarheimilinu Borgum. Umsjón með fundunum hafa: Helgi Steinn Björnsson, háskólanemi, Ýr Sigurðardóttir, háskólanemi og Ágústa Tryggvadóttir, menntaskólanemi.
Starfið hefst 6. október n.k.
Vikan í Kópavogskirkju
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirVikudagskrá í Kópavogskirkju, veturinn 2015-2016
Sunnudagar:
Guðsþjónustur eða messur kl. 11:00. Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni en flyst eftir upphaf í safnaðarheimilið Borgir.
Mánudagar:
Skrifstofan opin 09:00-13:00
Vetrarfermingarfræðsla kl.16:00-16:40
Sameiginleg fermingarfræðsla hópa einu sinni í mánuði kl.16:00-16:40.
Þriðjudagar:
Skrifstofan opin 09:00-13:00
Hádegisbænir í kirkju kl.12:10 og síðan hádegisverður í safnaðarheimilinu “Borgum”.
“Mál dagsins” í safnaðarheimilinu frá kl.14:30-16:00
Sóknarnefndarfundir eru fyrsta þriðjudag í mánuði frá kl. 17:15
Miðvikudagar:
Skrifstofan opin 09:00-13:00
Starf fyrir 1-2 bekk í safnaðarheimili frá kl.14:00-15:00
Starf fyrir 3-4 bekk í safnaðarheimili frá kl.15:30-16:30
Kóræfingar frá kl. 19:30-22:00
Fimmtudagar:
Skrifstofan opin 09:00-13:00
Foreldramorgnar í safnaðarheimili 10:00-12:00
Helgistund kl.16:00 í Sunnuhlíð
Föstudagar
Skrifstofan opin 09:00-13:00
Guðsþjónusta 27. september
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirGuðsþjónusta verður 27. september klukkan 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst í kirkju að venju.
Mál dagsins 22. september
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirMál dagsins 22. september hefst að venju með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðrik Kristinssonar. Kl. 15:10 heldur Arna Schram erindi um menningarmálefni. Um kl. 15:30 er drukkið kaffi og með því. Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.
Allir hjartanlega velkomnir.
Tónlistarmessa 20. september
/in Fréttir/by Lilja Katrín GunnarsdóttirTónlistarmessa verður í Kópavogskirkju 20. september n.k. kl.11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni en flyst eftir messu upphaf í safnaðarheimilið Borgir.