Helgileikur í Kópavogskirkju

Annan sunnudag í aðventu þann 7. desember síðastliðinn sýndu elstu nemendur leiksskólans Kópasteins helgileik í barna- og fjölskylduguðsþjónustu í Kópavogskirkju.

Félagar úr 5. bekk Kársnesskóla sungu undir stjórn Elínar Halldórsdóttur. Á eftir guðsþjónustunni var jólaball í safnaðarheimilinu Borgum. Gengið var í kringum jólatré og Gluggagægir heimsótti ballið.

Jólaball-2014-2-e1418055544688-500x373 Jólaball-2014-373x500 Kópasteinn-3-e1418055705978-500x373 Kópasteinn-2014-2-500x373 Kópasteinn-2014-5-e1418055651338-373x500 Kópasteinn-2014-e1418055750226-500x373