Barna- og fjölskylduguðsþjónusta og jólaball 2. sunnudag í aðventu

Annan sunnudag í aðventu þann 7. desember næstkomandi verður barna- og fjölskylduguðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11:00.

Börn frá leikskólanum Kópasteini flytja helgileik.  Skólakór Kársnes syngur undir stjórn Elínar Halldórsdóttur.  Jólaball að guðsþjónustu lokinni í safnaðarheimili Kópavogskirkju, “Borgum”.  Þar verður gengið í kringum jólatré, boðið upp á hádegishressingu og von er að rauðklæddum gesti.

Allir að sjálfsögðu velkomnir.