Dagskrá á aðventu

Kópavogskirkja
29. nóvember. Fyrsti sunnudagur í aðventu.

Kl. 11:00 Tónlistarmessa. Fluttir verða aðventu- og jólasálmar. Friðarlogi frá skátum afhenntur.

Miðvikudagur 2. desember kl. 20:00-21:00.

Aðventutónleikar Kórs Kópavogskirkju í safnaðarheimilinu Borgum. Flutt verða jólalög frá Íslandi, Bretlandi og Bandaríkjunum. Stjórnandi Lenka Mátéová. Erna Vala Arnardóttir leikur á píanó og einsöng syngja söngvarar úr kórnum. Sr. Sigurður Arnarson segir frá aðventu- og jólahaldi í Bandaríkjunum og Bretlandi. Boðið verður upp á „aðventuveitingar“ eftir tónleikanna. Engin aðgangseyrir.

6. desember. Annar sunnudagur í aðventu

Barna – og fjölskylduhelgistund með þátttöku Skólakórs Kársnes undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Sunnudagaskólinn tekur þátt í helgistundinni. Jólaball verður í safnaðarheimilinu Borgum að lokinni guðsþjónustu. Sunnudagaskólakennarar leiða stundina. Enginn aðgangseyrir. Allir velkomnir

13. desember Þriðji sunnudagur í aðventu

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta. Börn úr leiksskólanum Kópasteini flytja helgileik.

16. desember kl. 17:30 í Kópavogskirkju.

Kirkjuhlaupið í Kópavogi. Fyrst sungnir jólasálmar og hlaupið hefst kl. 17:40 með kirkjuklukknahringingu, hlaupið verður á milli nokkurra kirkna í Kópavogi. Eftir hlaupið er boðið upp á hlaupavænar veitingar í safnaðarheimili Kópavogskirkju, Borgum.

20. desember. Fjórði sunnudagur í aðventu

Kl. 11:00 Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, prédikar og þjónar fyrir altari. Sigrún Harðardóttir leikur á fiðlu.

Sóknarprestur, prédikar og þjónar í öllum guðsþjónustum nema annað sé tekið fram. Kór Kópavogskirkju syngur undir í öllum guðsþjónustum undir stjórn Lenku Mátéová nema annað sé tekið fram. Nánar á vef Kópavogskirkju.

Mál dagsins 24. nóvember

Mál dagsins verður 24. nóvember og hefst kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar. Um kl. 15:10-15:30 flytur dr. Ragnar Ingi Aðalsteinsson, aðjúnkt erindi um íslenska tungu og beinir hann sjónum sínum til dæmis; að bragfræðinni. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.

Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins 17. nóvember

Mál dagsins verður 17. nóvember n.k og hefst að venju með samsöng kl. 14:30 undir stjórn Lenku Máteóvá og Friðriks Kristinssonar. Klukkan 15:10 -15:30 flytur Þurý Björk Björgvinsdóttir frá Utanríkisráðuneytinu erindi. Um kl. 15:30 verður drukkið kaffi. Stundinni lýkur með stuttri helgistund kl. 16:00.

Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 22. nóvember

Guðsþjónusta verður sunnudaginn 22. nóvember n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkju en flyst svo í safnaðarheimilið Borgir.

Allir velkomnir.

Skrifstofa Kópavogskirkju

Skrifstofa Kópavogskirkju verður lokuð frá 11. nóvember til og með 27. nóvember.

Fylgst er náið með tölvupóstum og símsvara kirkjunnar.

Guðsþjónusta 15. nóvember n.k.

Guðsþjónusta verður sunnudaginn 15. nóvember n.k. kl. 11:00. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéova. Sunnudagaskólinn hefst í kirkjunni en flyst svo í safnaðarheimilið Borgir.

Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins

Mál dagsins 10. nóvember n.k. hefst kl. 14:30 með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Um kl. 15:10 flytur Sigríður Ella Magnúsdóttir, söngkona erindi. Um kl.15:30 verður drukkið kaffi. Stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.

Allir velkomnir.

Mál dagsins 27. október

Mál dagsins verður 27. október n.k. kl. 14:30 og hefst með samsöng undir stjórn: Lenku Mátéová og Friðriks Kristinssonar. Um kl. 15:10 heldur Margrét Valdimarsdóttir, formaður Heimilisiðnaðarfélags Íslands erindi. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi. Stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn.

Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta á “allra heilagra messu”, 1. nóvember

Sunnudaginn 1. nóvember n.k. verður guðsþjónusta á “Allra heilagra messu” í Kópavogskirkju kl. 11:00. Þá er þeirra sérstaklega minnst, sem eru látnir.

Beðið verður með nafni fyrir þeim, sem sóknarprestur Kópavogskirkju hefur jarðsungið á tímabilinu 20. október 2014- til 20. október 2015 og aðstandendum þeirra er boðið sérstaklega til guðsþjónustunnar.

Ásta Ágústsdóttir, djákni mun prédika og sóknarprestur þjóna fyrir altari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagskólinn hefst að venju í kirkjunni á sama tíma en flytur sig síðan í safnaðarheimilið Borgir. Flutt verður tónlist í kirkjunni frá kl. 10:30 og þá gefst kostur að tendra á bænaljósi við altari. Eftir guðsþjónustu verður boðið upp á hressingu í safnaðarheimilinu Borgum. Sr. Sigurður Arnarson flytur stutt erindi um sorg og sorgarviðbrögð.

Allir eru hjartanlega velkomnir.

Kópavogskirkja úr lofti

image-38-e1445374020968-150x150 image-401-e1445374065797-150x150 image-441-e1445374106595-150x150

Þessa dagana er unnið við að háþrýstiþvo Kópavogskirkju, síðan verður gert við sprungur og kirkjan máluð að utan þegar veður leyfir.

Meðylgjandi myndir voru teknar úr körfu, sem notuð er við þvottinn og sýna framkvæmdirnar og umhverfi kirkjunnar.