Messa 19. ágúst n.k. kl. 11:00 í Kópavogskirkju

Messa verður í Kópavogskirkju n.k. sunnudag 19. ágúst kl. 11:00. Á eftir guðsþjónustu verður stuttur fundur í kirkjunni um fermingarstarfið framundan. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.