Guðsþjónusta á konudaginn 24. febrúar kl.11:00

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 24. febrúar n.k. kl. 11:00. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Kristínar Jóhannesdóttur. Kaffisopi á eftir í kirkjunni. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.