Entries by Sigurður Arnarson

Fermingar vorið 2020

Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru boðuð sérstakalega til messu og fundar á eftir sunnudaginn 12. maí, 2019 kl.11:00 í Kópavogskirkju. Þá hefst skráning í fermingarfræðsluna og farið verður yfir starfið framundan á fundinum. Fermt verður á Pálmasunnudag 5. apríl og Skírdag 9. apríl áirð 2020 kl. 11:00 í Kópavogskirkju.

La Traviata í Máli dagsins 12. mars n.k.

Mál dagsins hefst að venju kl. 14:30 þann 12. mars n.k. með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10-15:30 mun Steinunn Birna Ragnarsdóttir, óperustjóri segja frá óperunni La Traviata og uppsetningu óperunnar í Hörpu. Drukkið er kaffi kl. 15:30 og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri bæn og blessun.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 3. mars kl.11:00

Barna- og æskulýðsguðsþjónusta verður á æskulýðsdegi Þjóðkirkjunnar sunnudaginn 3. mars n.k. kl.11:00. Ingunn Sif Þórðardóttir, sem fermist í vor mun flytja ávarp. Sóknarpestur og starfsmenn í sunnudagaskólanum leiða stundina en sunnudagaskólinn tekur þátt í stundinni. Skólakór Kársnes mun syngja undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins 19. febrúar

Mál dagsins 19. febrúar n.k. hefst kl. 14:30 að venju með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10-15:30 mun Ólöf Breiðfjörð, verkefnisstjóri frá Kópavogsbæ segja frá Vetrarhátíð og menningartengdum atburðum. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 17. febrúar

Sunnudaginn 17. febrúar kl. 11:00 mun dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, héraðsprestur prédika og þjóna fyrir atlari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn á sama tíma í safnaðarheimilinu Borgum.

Guðsþjónusta 10. febrúar n.k.

Guðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 10. janúar n.k. Þorgils Hlynur Þorbergsson, guðfræðingur prédikar og sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir atlari. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn hefst kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Allir hjartanlega velkomnir.

Vetrarhátíð í Kópavogi 8. febrúar n.k.

Kópavogskirkja tekur þátt í Vetrarhátíð í Kópavogi 8. febrúar n.k. Klukkan 18:00-21:30 verður kirkjan opin og gestir geta skoðað muni nokkra muni kirkjunnar og kveikt á kertum við altariströppur. Nemandi kantors kirkjunnar mun æfa sig á orgelið. Klukkan 18-23 mun Kópavogskirkja og Borgarholtið taka á sig óvenjulega mynd með vörpun úr vídeóverki Hrundar Atladóttur en […]