Aðventuhlaup í Kópavogi

Hið árlega aðventuhlaup í Kópavogi verður laugardaginn 1. desember og hefst kl.09:00 frá Kópavogskirkju. Hlaupið er í samvinnu við hlaupahóp Breiðabliks. Um er að ræða 7km eða 11 km. Á eftir er boðið upp á hlaupavænar veitingar í safnaðarheimili Kópavogskirkju. Allir hjartanlega velkomnir.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 2. desember kl. 11:00 og jólaball á eftir.

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður 2. desember n.k. kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum (ekki í kirkjunni vegna framkvæmda þar). Ásta Ágústsdóttir, djákni leiðir stundina ásamt sunnudagaskólakennurum. Börn úr Kársnesskóla syngja undir stjórn Þóru Marteinsdóttur. Á eftir verður jólaball í safnaðarheimilinu og mun rauðklæddur gestur meðal annars koma í heimsókn. Allir hjartanlega velkomnir.

Helgistund 25. nóvember n.k. kl.11:00 í safnaðarheimilinu Borgum

Helgistund verður sunnudaginn 25. nóvember klukkan 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum (athugið breyttan stað). Ingimar Helgason, guðfræðingur leiðir stundina. Félagar úr Kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í stóra sal í safnaðarheimilinu. Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 18. nóvember kl. 11.00 (athugið annan messustað)

Guðsþjónusta verður sunnudaginn 18. nóvember n.k. kl. 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum. Nú standa yfir endurbætur og viðgerðir í Kópavogskirkju og þess vegna er messað í safnaðarheimilinu. Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr kór Kópavogskirkju syngja undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma í kapellu safnaðarheimilisins. Allir hjartanlega velkomnir.

Mál dagsins 20. nóvember

Mál dagsins 20. nóvember hefst að venju með samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová. Klukkan 15:10-15:30 flytur Helgi Ágústsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri og sendiherra erindi um Þorskastríðið. Klukkan 15:30 er drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með bæn og blessun. Allir hjartanlega velkomnir.

Framkvæmdir

Í lok nóvembermánaðar er áformað að setja upp eftir nokkurra mánað viðgerð í Þýskalandi steint gler Gerðar Helagdóttur á suðurhlið kirkjunnar. Einnig er unnið að gerð útilýsingar á kirkjunni. Vegna framkvæmdanna verður kirkjan lokuð frá og með 16. nóvember í nokkrar vikur

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta 11. nóvember

Barna- og fjölskylduguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 1. nóvember n.k. klukkan 11:00. Sunnudagaskólinn tekur þátt í stundinni. Félagar úr 5-6 bekk í Kársnesskóla syngja undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur. Allir hjartanlega velkomnir.

Basar í safnaðarheimilinu Borgum. Sunnudaginn 4. nóvember n.k. frá kl. 13:00-16:00

Basar á vegum félaga úr „Máli dagsins“ verður til styrktar viðgerðum á steindu gleri Gerðar Helgadóttur í Kópavogskirkju verður sunnudaginn 4. nóvember kl. 13:00-16:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Fjölbreyttir munir í boði og kaffi og vöfflur til sölu.    Allir hjartanlega velkomnir.

Sunnudagaskóli 4. nóvember kl. 11:00

Sunnudagaskóli verður 4. nóvember klukkan 11:00 í safnaðarheimilinu Borgum.  Þá gefst gott tækifæri að syngja og læra um Guð.  Allir hjartanlega velkomnir.

Guðsþjónusta 4. nóvember kl.11:00

Minnst verður sérstaklega þeirra, sem eru látin.  Beðið verður með nafni og kveikt á kerti til minningar um hvert þeirra, sem sóknarprestur Kópavogskirkju hefur jarðsungið frá 20. október 2017 til og með 29. október 2018.  Aðstandendum þeirra er boðið sérstaklega til guðsþjónustunnar.  Sr. Sigurður Arnarson, sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari ásamt Ástu Ágústsdóttur, djákna.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Flutt verður tónlist í kirkjunni frá kl. 10:30 og þá gefst kostur á að tendra á bænaljósi í kirkjunni.  Eftir guðsþjónustu er boðið upp á hressingu í safnaðarheimilinu Borgum.  Ásta Ágústsdóttir, djákni mun þá fjalla um sorg og sorgarviðbrögð.  Allir velkomnir.