Messa í Kópavogskirkju 23. nóvember n.k.

Næsta messa verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 23. nóvember n.k. kl.11:00.  Sr. Sigurður Arnarson, prédikar og þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.  Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni.

Í messunni verður helgaður og tekinn í notkun nýr grænn hökull, sem saumaður er af Herder Anderson, klæðskerameistara.  Hökulinn var unninn í sumar og haust.  Eftir messu verður messukaffi í safnaðarheimilinu Borgum.

Allir hjartanlega velkomnir.

Foreldramorgnar

Foreldramorgnar eru á fimmtudögum frá kl.10:00-12:00 í safnaðarheimilinu Borgum.

“Mál dagsins”

Næsta “Mál dagsins”  verður þriðjudaginn 18. nóvember n.k. kl. 14:30 og hefst að venju með samsöng í umsjón: Friðriks Kristinssonar og Lenku Mátéová.  Um kl. 15:05 munu þau Björk Þórhallsdóttir, söngkona og Hilmar Örn Agnarsson, orgelleikari flytja tónlist.  Um kl. 15:30 er drukkið kaffi og með því.  Stundinni lýkur svo kl. 16:00 með stuttri helgistund.

Allir hjartanlega velkomnir.

Æskulýðsfundur

Æskulýðsfundur verður í safnaðarheimilinu Borgum þriðjudaginn 18. nóvember n.k. kl.20:00.

Vetrarfermingarfræðsla

Mánudaginn 17. nóvember n.k. fellur vetrarfermingarfræðsla niður kl.15:10 vegna starfsdags í Kársnesskóla.  Næsti vetrarfermingarfræðslutími er mánudaginn 24. nóvember n.k.

Dagur íslenskrar tungu þann 16. nóvember n.k.

Sunnudaginn 16. nóvember n.k. á degi íslenskrar tungu mun Þórður Ingi Guðjónsson, sérfræðingur á Árnastofnun flytja hugleiðingu í guðsþjónustu í Kópavogskirkju kl. 11:00.  Sr. Sigurður Arnarson, þjónar fyrir altari.  Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová.  Sunnudagaskólinn hefst að venju í kirkjunni kl. 11:00 en flyst eftir guðsþjónustu upphaf í safnaðarheimilið Borgir.

Mál dagsins 11. nóvember 2014

Mál dagsins 11. nóvember n.k. hefst að venju með samsöng kl. 14:30.  Um kl. 15:10 heldur Aðalsteinn Sigfússon, forstöðumaður velferðarsviðs Kópavogs erindi.  Um kl. 15:30 verður drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.

Allir hjartanlega velkomnir.

Söfnun fermingarbarna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar

Næstkomandi þriðjudag 4. nóvember n.k. munu fermingarbörn í Kársnessókn ganga í hús í sókninni á milli 18:00-20:00 og safna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar.

Mál dagsins 4. nóvember

Mál dagsins er vikulega á þriðjudögum frá kl. 14:30-16:00. Næstkomandi þriðjudag hefst stundin á samsöng undir stjórn Friðriks Kristinssonar og Lenku Máteóvá.  Um kl. 15:05 heldur Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn erindi um störf lögreglunar.  Um kl. 15:30 verður drukkið kaffi og stundinni lýkur kl. 16:00 með stuttri helgistund.

Allir hjartanlega velkomnir.

“Húnvetningaguðsþjónusta”

Húnvetningaguðsþjónusta verður í Kópavogskirkju sunnudaginn 2. nóvember n.k. kl.14:00.  Sr. Úrsula Árnadóttir, prédikar og sr. Sigurður Arnarson þjónar fyrir altari.  Húnakórinn syngur undir stjórn Þórhallar Bárðarsonar.

Allir hjartanlega velkomnir.